Þessi litli búnaður dregur úr þörfinni
á daglegu eftirliti með músafellum. Honum er komið fyrir í þar til gerðu hólfi,
annað hvort í gólfplötunni fyrir Runbox Pro eða Runbox Eco músafellustöðvunum
eða þá í millistykki sem hægt er að fá með minni gerðinni af EcoGuard
beitustöðvunum. Til að virkja skynjarann er þrýst á hann með fingri í þrjár
sekúndur. Þegar fellan smellur gefur skynjarinn frá sér þrjú tíst á 30 sekúndna
fresti þangað til slökkt er á honum með því að þrýsta aftur á sama rofa.