• Ultrason X fuglahátíðnifæla 335fm

Losnaðu við fuglana með hljóðlátu fælingartæki.
Ultrason X er fyrsta hátíðnifuglafælan í heiminum sem sérstaklega er hönnuð til notkunar utanhúss og á hálflokuðum svæðum allt árið. Tækið gefur frá sér hljóðbylgjur sem eru ofar tíðni sem flest fólk heyrir og fælir fugla þannig í burtu án þess að valda fólki óþægindum.

Hátalarar Ultrason X senda út óþægilegar, viðvarandi hátíðnihljóðbylgjur sem fæla fugla í burtu. Þessi hátíðnifæla hentar til dæmis vel á bensínstöðvum, bílastæðum, vöruhúsum, veröndum og fleiri stöðum.

Tæknilýsing:
 • Stærðir: Stjórntækið er 229 x 229 x 127 mm, hátalarnir 102 x 102 x 152 mm
 • Hátalarar: 8 ohm, 75 wött
 • Vernda allt að 330 fermetrum
 • Orkuþörf: 220vAC
 • 110v, 220v og 240v snúrurnar eru 1,8 metrar
 • Hljóðstyrkur: 95-102 dB (hver hátalari) í eins metra fjarlægð
 • Tíðni: 15-25 kHz
 • CE merkt vara
 • Innifalið: Stjórntæki, fjórir hátalarar með snúrum, 30 metrar með hverjum hátalara, AC straumbreytir með snúru og ítarlegar leiðbeiningar á ensku
 • Framleitt í Bandaríkjunum

Ultrason X fuglahátíðnifæla 335fm

  • Vörumerki Bird-X
  • Vörunúmer: BX0008
  • Lagerstaða: Til á lager