ExHale veggjalúsavaki
ExHale veggjalúsavaki er snjall skammtari sem stýrir losun ExHale á virkan og markvissan hátt til að líkja sem best eftir nærveru manns. Skammtarinn losar ExHale með reglulegu millibili og er hannaður til að auka líkurnar á að veggjalýs fari úr felustöðum sínum og hefji fæðuleit. Með næturstillingu er hægt að samræma notkunina þeim tíma sólarhringsins þegar veggjalýs eru virkastar, sem gerir eftirlit og greiningu markvissari.
ExHale veggjalúsavaki er sérstaklega gagnlegur fyrir meindýraeyða við staðfestingu á smiti, mat á virkustu svæðum áður en meðferð hefst og eftirlit eftir meðferð. ExHale áreiðanlegt og skilvirkt verkfæri til að bæði vakta og kalla fram virkni veggjalúsa, og óháðar rannsóknir sýna að notkun þess auki virkni veggjalúsa og bæti greiningu.






