Þéttisett gegn nagdýrum, Raxit Foam

RAXFOAM er þéttisett til að loka götum, rifum og sprungum sem mýs og rottur geta notað til að komast inn í byggingar. Í settinu eru RAXFOAM þenslufrauð, BSP-net úr ryðfríu stáli og Raxit Seal-listi.

RAXFOAM þenslufrauðið er tilbúið til notkunar og inniheldur íblöndunarefni sem ætlað er að fæla frá mýs og önnur meindýr. Frauðið þenst út, fyllir holrými og loðir vel við algeng byggingarefni á borð við timbur, steinsteypu, stein, múr, málm, PVC og pólýstýren.

BSP-netið og Raxit Seal-listinn styrkja þéttinguna og mynda hindrun sem torveldar músum og rottum að komast í gegn. Á svæðum þar sem mikið er um nagdýr skal ávallt nota Raxit Seal-listann með frauðinu.

Vörunúmer: RT0037 Flokkar: ,
Vörumerki:Raxit