Selgiene Extreme sótthreinsandi 5 ltr.

Lyktarlaust sótthreinsandi hreinsiefni fyrir fagfólk

Selgiene Extreme er öflugt bakteríu-, hjúpveiru- og sveppadrepandi hreinsiefni fyrir faglega notkun. Efnið hentar vel fyrir meindýraeyða, ræstingafólk og aðra fagaðila sem þurfa að þrífa og sótthreinsa vatnsþolna fleti á áhættusvæðum.

Hentar sérstaklega vel við frágang eftir umgang nagdýra, fugla eða annarra meindýra, sem og í heilbrigðisþjónustu, matvælaumhverfi, skólum, hótelum, veitingastöðum og öðrum stöðum þar sem miklar kröfur eru gerðar til hreinlætis.

Selgiene Extreme hreinsar og sótthreinsar í einni aðgerð og má nota á alla vatnsþolna fleti og gólf. Efnið uppfyllir EN 1276, EN 14476 og EN 1650 og hefur virkni gegn algengum bakteríum, hjúpveirum og gersveppum, þar á meðal E. coli, salmonellu, MRSA, kórónuveirum, inflúensu og Candida.

Notkun:
Spreyið eða moppið efnið á yfirborðið og látið virka í að minnsta kosti 30 sekúndur. Þurrkið af með hreinum klút, moppið eða skolið af.

Á flötum sem komast í snertingu við matvæli skal skola með hreinu vatni eftir notkun.

Tæknilegar upplýsingar
Lyktarlaus, bleikur og tær vökvi.
pH: 9,8–10,8.
Geymsluþol: 2 ár í óopnuðum umbúðum við stofuhita.
Framleitt í Bretlandi samkvæmt ISO 9001, ISO 14001 og ISO 45001

Vörunúmer: SS2205 Flokkur:
Vörumerki:Selden