Selgiene Extreme sótthreinsandi RTU 750 ml

Tilbúið lyktarlaust sótthreinsandi hreinsiefni fyrir fagfólk

Selgiene Extreme RTU er öflugt tilbúið sótthreinsandi hreinsiefni fyrir faglega notkun. Efnið er bakteríu-, hjúpveiru- og sveppadrepandi og hentar vel fyrir meindýraeyða, ræstingafólk og aðra fagaðila sem þurfa að þrífa og sótthreinsa vatnsþolna fleti á áhættusvæðum.

Hentar sérstaklega vel við frágang eftir umgang nagdýra, fugla eða annarra meindýra, sem og í heilbrigðisþjónustu, matvælaumhverfi, skólum, hótelum, veitingastöðum og öðrum stöðum þar sem miklar kröfur eru gerðar til hreinlætis.

Selgiene Extreme RTU hreinsar og sótthreinsar í einni aðgerð og má nota á alla vatnsþolna fleti og gólf. Efnið uppfyllir EN 1276, EN 14476 og EN 1650 og hefur virkni gegn algengum bakteríum, hjúpveirum og gersveppum, þar á meðal E. coli, salmonellu, MRSA, Listeria monocytogenes, kórónuveirum, HIV, lifrarbólgu C, inflúensu/H1N1 og Candida.

Notkun:
Selgiene Extreme RTU er tilbúið til notkunar og þarf ekki að þynna.

Spreyið efninu á yfirborðið og látið virka í að minnsta kosti 30 sekúndur. Þurrkið af eða skolið með hreinum klút eftir þörfum.

Á flötum sem komast í snertingu við matvæli skal skola með hreinu vatni eftir notkun.

Tæknilegar upplýsingar:
Lyktarlaus, bleikur og tær vökvi.
pH: 9,5–10,5.
Eðlismassi: 1,005.
Geymsluþol: 2 ár í óopnuðum umbúðum.
Framleitt í Bretlandi samkvæmt ISO 9001, ISO 14001 og ISO 45001.

Vörunúmer: SS2297 Flokkur:
Vörumerki:Selden